Chris Coleman ósáttur við KSÍ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2009 10:00 Aron Einar Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm
Chris Coleman, knattspyrnustjóri Coventry, er afar ósáttur við að Aron Einar Gunnarsson hafi spilað allar 90 mínúturnar í vináttulandsleik Íslands og Suður-Afríku á þriðjudagskvöldið. Aron Einar hafði átt við meiðsli að stríða og missti af þeim sökum af leik Íslands og San Marinó í undankeppni EM U-21 landsliða fyrir viku síðan. Fram kemur í frétt Coventry Telegraph um málið að Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hafi hunsað tilmæli lækna Coventry um að Aron Einar þurfti á hvíld að halda. „Ég er mjög vonsvikinn svo ekki sé meira sagt," sagði Coleman. „Maður er að reyna að byggja upp traust meðal landsliðsþjálfaranna og mér fannst þetta afar eigingjarnt af þeirra hálfu." „Ég er þar með ekki að gagnrýna Aron því allir leikmenn vilja spila fyrir sín landslið. Ég get ekki annað en velt fyrir mér hvort þeir hafi beitt strákinn þrýstingi." „Við létum þau tilmæli fylgja að Aron gæti ekki spilað þar sem hann væri meiddur. Ég ræddi við lækni íslenska landsliðsins sem sagði að Aron þyrfti að koma til Íslands. Við samþykktum það en það kom okkur svo mjög á óvart að hann spilaði allan leikinn." Blaðamaður Vísis ræddi við Ólaf fyrir leikinn gegn Suður-Afríku og spurði út í stöðu Arons. Þá sagði Ólafur að læknir íslenska landsliðsins hafi sagt að Aron væri leikfær. Því hafi sú ákvörðun verið tekin að láta hann æfa og spila með landsliðinu.
Mest lesið Uppgjörið: Valur - Tindastóll 85-87 | Basile með sigurkörfu Körfubolti Opnaði sig um skilnaðinn og erfiða tíma Sport Niðurbrotin Eygló keppir ekki á HM Sport Trump fær blóðugan bardaga í Hvíta húsinu í afmælisgjöf Sport Bjarni Guðjóns tók einn KR-ing sérstaklega fyrir Íslenski boltinn Arnar Gunnlaugs segir gagnrýnendur Liverpool gleyma mannlega þættinum Enski boltinn „Hættiði að horfa á klám og hættiði að runka ykkur“ Sport UEFA grætur niðurstöðuna en gefur grænt ljós Fótbolti Stólarnir komust ekki heim og æfa í Grindavík fyrir stórleikinn Sport Gleðin í klefanum hjá nýju Íslandsmeisturunum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guardiola ætlar að skipuleggja kvöldverð með Wenger og Ferguson Sjáðu allt um enska boltann um helgina á fimm mínútum „Þá er búið að yfirtaka sál félagsins“ Arnar Gunnlaugs segir gagnrýnendur Liverpool gleyma mannlega þættinum Pep fljótastur í 250 sigra „Þarf að halda í við Mbappé og Kane“ Haaland lyfti Man City upp í sjötta sætið „Á endanum fengum við á okkur mark í blálokin“ Markaskorarinn Mount vonast til að sigur dagsins sé vendipunkturinn Þriðja tap Liverpool í röð Man Utd - Sunderland 2-0 | Nauðsynlegur sigur fyrir Amorim Arsenal á toppinn Leeds - Tottenham 1-2 | Tottenham upp í annað sæti eftir sigur á Leeds Sjáðu glæsimörkin sem skiluðu Bournemouth upp í annað sætið Segir nýju mennina hjá Liverpool ekkert hafa getað Semenyo í stuði og Bournemouth upp í annað sætið Tíu bestu mörkin úr leikjum Chelsea og Liverpool Antony sakar United um virðingarleysi og dónaskap Sláandi xG tölfræði hjá Manchester United Enginn Foden, Bellingham eða Grealish í enska landsliðshópnum Nýbyrjaður en hans eigin stuðningsmenn sungu: „Þú verður rekinn í fyrramálið“ Stjörnuleikmaður Liverpool missir af mörgum stórleikjum Pirraður yfir marki undir vegg: „Hann leggst bara í einhverja fósturstellingu“ „Í DNA okkar Sunderland-manna að þola þennan mann ekki“ Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Fékk óvart rautt spjald Amorim að verða uppiskroppa með afsakanir Opinberað að Beard tók eigið líf Sjá meira