Nytjastofnarnir eru ágætlega settir 16. október 2009 06:00 Þrír af helstu nytjastofnum Íslendinga eru ágætlega settir samkvæmt rannsóknum að dæma. nordicphotos/afp MYND/AFP
Nýlokið er fundi ráðgjafarnefndar Alþjóðahafrannsóknaráðsins þar sem fjallað var um ástand nokkurra nytjastofna í Norðaustur-Atlantshafi og tillögur um nýtingu þeirra. Meðal þeirra eru norsk-íslensk vorgotssíld, kolmunni og makríll en þar sem veiðar úr þessum stofnum eru alþjóðlegar hefur Hafrannsóknastofnunin komið að mati á stærð og veiðiþoli þessara stofna með virkri þátttöku í vinnunefndum og ráðgjafarnefnd ráðsins og stofnunin þannig komið að mótun ráðgjafarinnar. Stærð hrygningarstofns norsk-íslensku síldarinnar árið 2009 er metin á um þrettán milljónir tonna, sem er um milljón tonna aukning miðað við undanfarin þrjú ár. Alþjóðahafrannsóknaráðið telur að stofninn sé nýttur á sjálfbæran hátt. Samkvæmt tillögu ráðsins verður aflamarkið 1,5 milljónir tonna árið 2010. Kolmunnastofninn fer minnkandi og síðustu árgangar eru metnir nálægt sögulegu lágmarki. Þetta kemur niður á afla en tillaga er gerð um aflamark sem nemur 540 þúsund tonnum árið 2010. Hrygningarstofn makríls er metinn 2,6 milljónir tonna. Gert er ráð fyrir að aflinn á árinu 2009 verði rúm 800 þúsund tonn, þar af afli Íslendinga 112 þúsund tonn. Ráðið leggur til að heildaraflinn á árinu 2010 verði á bilinu 527-572 þúsund tonn. - shá
Mest lesið „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Innlent „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Innlent Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Innlent Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ Innlent „Ég held að þetta sé ekki bóla“ Innlent Komu göngumönnum í sjálfheldu til aðstoðar Innlent „Það þarf sennilega að moka þennan bíl upp“ Innlent Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Innlent Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar Innlent Fleiri fréttir „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Komu göngumönnum í sjálfheldu til aðstoðar Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar „Ég held að þetta sé ekki bóla“ Kona flutt á spítala eftir fjóhjólaslys Vara við að gangast undir fegrunarmeðferðir hjá óviðurkenndum aðilum „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Barst tilkynning um olíustuld í Hafnarfirði „Léleg blaðamennska“ sem byggi á upphrópunum og hatri á atvinnulífi Ítrekað ofbeldi, skelfdur Íslendingur eftir skjálfta og padel-æði „Það þarf sennilega að moka þennan bíl upp“ Leggja stöðvunarkröfu á framkæmdir við Hvammsvirkjun Lögreglan leitar upplýsinga um þennan mann Lögreglan leitar þessara manna Eldur kviknaði í hjúkrunarheimili á Höfn Stöðfirðingar þreyttir á ferðamönnum sem geri þarfir sínar um allan bæ Fagnar tillögu Sigurjóns og segir veiðiráðgjöf Hafró ranga Langþreyttur á bensínbrúsum og „bílakirkjugarði“ Úkraínumenn vilja fá Íslendinga í almannavarnabandalag Risaskjálfti í Kyrrahafi og bensínbrúsabílar í Breiðholti Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Skýrsla Guðlaugs Þórs frá 2018: „Aðildarviðræðunum var ekki formlega slitið“ Veðurspáin fyrir helgina að skána Fjallabaksleið syðri lokuð vegna vatnavaxta Engin nóróveira í Laugarvatni Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Reyndi að skemma bíl og hljóp svo undan lögreglu Sjá meira