Lífið

Sextán ára í Eurovision

Karen Pálsdóttir tekur þátt í Eurovision-keppninni í fyrsta sinn í janúar á næsta ári.fréttablaðið/gva
Karen Pálsdóttir tekur þátt í Eurovision-keppninni í fyrsta sinn í janúar á næsta ári.fréttablaðið/gva

Karen Pálsdóttir, sextán ára stúlka úr Hafnarfirði, tekur þátt í undankeppni Eurovision í janúar. Hún lenti í öðru sæti í Músíktilraunum á síðasta ári.

„Ég hlakka svakalega mikið til, þetta verður geðveikt gaman. Ég hef alltaf haft svo gaman af Eurovision,“ segir Karen, sem er nýorðin sextán ára. Hún er þessa dagana að ljúka hljóðversupptökum á laginu, sem nefnist Future og er poppað danslag. Auk þess er hún í stífri söng- og dansþjálfun hjá Margréti Eir og Sigrúni Birnu Blomsterberg. Tveir dansarar verða með henni á sviðinu í sjónvarpssal og tvær manneskur syngja bakraddir.

Skondið atvik gerðist fyrir skömmu við upptökurnar í hljóðverinu þegar rafmagnið fór skyndilega af. „Ég var að syngja lagið í gegn og allt í einu slökknaði allt. En við höfðum það bara notalegt og sátum inni með kertaljós,“ segir Karen, sem lét atvikið ekkert á sig fá.

Höfundar lagsins eru Bryndís Sunna Valdimarsdóttir og Daði Georgsson. Bryndís hefur áður sent frá sér tvö lög í undankeppni Eurovision, sem Sigurjón Brink söng í bæði skiptin. Fyrst söng hann Hjartaþrá árið 2006 og árið eftir söng Sigurjón lagið Áfram, sem hann samdi með Bryndísi Sunnu. Bryndís átti einnig sigurlagið í Dægurlagakeppni Sauðárkróks árið 2004. Það heitir Sumar í hjarta og var flutt af Heiðu Ólafsdóttur.

Karen Pálsdóttir vakti fyrst athygli í tónlistarbransanum á síðasta ári þegar hún lenti í öðru sæti í Músíktilraunum. Þar rappaði hún með vini sínum Óskari Axel og kölluðu þau sig einfaldlega Óskar Axel og Karen P. Karen mun stíga á svið á fyrsta Eurovision-kvöldinu í sjónvarpssal hinn 9. janúar. Fróðlegt verður að fylgjast með þessari ungu og efnilegu söngkonu hefja upp raust sína í von um að landsmenn kjósi hana til áframhaldandi þátttöku.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.