Hjúkrunarheimilum lokað á næsta ári 30. desember 2009 14:51 Mynd/GVA
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur ákveðið að loka hjúkrunarheimilunum í Víðinesi og á Vífilsstöðum 1. september 2010. Við lokunina flyst heimilisfólk á nýtt hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut sem stjórnvöld eru að byggja í samstarfi við Reykjavíkurborg og tekið verður í notkun á næsta ári að undangengnu útboði á rekstrinum, að fram kemur í sameiginlegri tilkynningu Hrafnistu og ráðuneytisins. Heimilisfólk í Víðinesi og á Vífilsstöðum sem ekki kýs að flytja á nýja hjúkrunarheimilið við Suðurlandsbraut getur óskað eftir flutningi til annarra hjúkrunarheimila. Breytingarnar eru liður í áætlun ráðuneytisins um fækkun fjölbýla og bættan aðbúnað aldraðra á hjúkrunarheimilum. Starfsfólk á Vífilsstöðum og í Víðinesi mun njóta forgangs í störf á nýja hjúkrunarheimilinu í samræmi við kröfur í væntanlegum útboðsgögnum. Samningur hins opinbera við Sjómannadagsráð um rekstur Víðiness og Vífilsstaða er útrunninn, en aðilarnir hafa nú gert nýjan samning um að Hrafnista reki áfram heimilin tvö þar til af flutningi verður. Fram kemur í tilkynningunni að stjórnendur Hrafnistu hafi kynnt starfsfólki hjúkrunarheimilanna þessar breytingar á fundi fyrr í dag ásamt fulltrúum frá félags- og tryggingamálaráðuneyti. Í kvöld hafa verið boðaðir kynningafundir með heimilisfólki og aðstandendum þess. „Hrafnista hefur síðustu ár annast rekstur hjúkrunarheimilanna í Víðinesi og á Vífilsstöðum á grundvelli samninga við ríkið. Hjúkrunarheimilið í Víðinesi var opnað í apríl árið 1999 eftir miklar endurbætur á húsnæðinu. Árið 2002 tók Sjómannadagsráð við rekstrinum, þar sem eru tvær deildir fyrir 38 heimilismenn. Þar starfa 66 manns í 38 stöðugildum. Vífilsstaðir er hjúkrunarheimili fyrir 50 hjúkrunarsjúklinga. Hrafnista tók við rekstrinum árið 2003 og opnaði í byrjun árs 2004 að loknum gagngerum breytingum á húsnæðinu sem kostuðu rúmlega 300 milljónir króna. Á Vífilsstöðum starfa 96 manns í 51 stöðugildi," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira