Björgunarafrek Guðmundar: „Þessi saga kom mér ekki á óvart“ 27. desember 2009 13:00 Hetjuafrek Guðmundar Sesars hefur fyllt fólki von og kærleik á jólunum. „
Þetta var alveg í hans stíl," segir rithöfundurinn Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir sem skrifaði ævisögu Guðmundar Sesars Magnússonar fyrir nokkrum árum, en hann lést í sjóslysi við Skrúð nálægt Fáskrúðsfirði þann 16. desember. Predikunin, sem séra Jóna Hrönn Bolladóttir flutti á aðfangadag í Garðakirkju, hefur vakið gríðarlega athygli en þar segir hún frá ótrúlegri lífsbjörg tengdasonar Guðmundar, Ívars Smára Guðmundssonar. Í predikuninni segir: „Þar sem þeir héldu hvor í annars hægri hönd með olíubrákað sjóvatnið undir höku en með þeirri vinstri héldu þeir við hnakkann hvor á öðrum. „Og ég sem hlakkaði til að eiga fyrstu jólin með syni mínum og konunni." mælti Ívar. Þá horfði Sesar inn í augu hans í myrkrinu og sagði: „Þá skaltu líka lifa! Þú getur komist niður gatið, inn í stýrishúsið og út!" Við svo búið setti hann hönd ofan á hvirfil tengdasonar síns og ýtti honum af afli niður í átt að útgönguleiðinni." Fyrir vikið komst Ívar Smári út úr bátnum sem hafði hvolft eftir að brot kom á hann. Voru þeir fastir í öfugu brakinu og í fyrstu virtist ekkert bíða þeirra nema dauðinn. Guðmundur Sesar ýtti þá tengdasyni sínum út og það varð honum til lífs. Sjálfur lét hann lífið. „þessi saga kom mér ekki á óvart," segir Þórunn Hrefna en hún skrifaði einstaka sögu Guðmundar og baráttu hans við að endurheimta dóttur sína úr klóm handrukkara. Bókin heitir Sigur í hörðum heimi. Þar segir frá harðri baráttu Guðmundar við handrukkara og böl fíkniefnaheimsins þegar hann freistaðist til þess að bjarga dóttur sinni. Innsýn hans í undirheimana var hrollvekjandi en um leið mögnuð baráttusaga þar sem hann hafði að lokum sigur. Hann frelsaði dóttur sína sem nú á kornungt barn með Ívari Smára. Þórunn segir að hann hafi misst íbúðina sína baráttunni en bókin vakti gríðarlega athygli á sínum tíma. Þórunn segir Guðmund Sesar hafa verið magnaðan mann. Hann hafi verið hamhleypa til verka og það hafi verið sérstaklega gott að vinna bókina með honum. „Hann var ekta maður," Segir Þórunn Hrefna þegar hún reynir að lýsa honum. Hún segir að hann hafi verið greindur þó að hann hafi hætt námi aðeins fimmtán ára gamall. Hann var gríðarlega einbeittur og góður vinur vina sinna. Hún segist síðast hafa hitt Guðmund Sesar í búsáhaldabyltingunni í janúar en svo hafi hún ekki hitt hann. Í predikun Jónu Hrannar hefur hún eftir konu Guðmundar, að sjálfur hafi Guðmundur ekki verið neinn dýrlingur. „Við höfum nú frekar brotna geislabauga prestur minn," sagði hún við Jónu Hrönn þegar þær ræddu saman um innihald predikunarinnar. „Það er einmitt það sem gerir þessa sögu svo magnaða," segir Þórunn Hrefna um Guðmund Sesar en hann verður jarðsunginn í vikunni.
Tengdar fréttir Einstök björgun: Fórnaði sér svo tengdasonur gæti lifað Séra Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðabæ, sagði frá ótrúlegu afreki Guðmundar Sesars Magnússonar í predikun sinni á aðfangadegi en hann lést í sjóskaða utan Fáskrúðsfjarðar þann 16. desember. Þá sökk 15 tonna plastbátur eftir að hann fékk brot á sig. Með Guðmundi um borð var tengdasonur hans, Ívar Smári Guðmundsson. 26. desember 2009 14:57 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Barn réðst með belti á önnur börn Innlent NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Fleiri fréttir Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Sjá meira
Einstök björgun: Fórnaði sér svo tengdasonur gæti lifað Séra Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðabæ, sagði frá ótrúlegu afreki Guðmundar Sesars Magnússonar í predikun sinni á aðfangadegi en hann lést í sjóskaða utan Fáskrúðsfjarðar þann 16. desember. Þá sökk 15 tonna plastbátur eftir að hann fékk brot á sig. Með Guðmundi um borð var tengdasonur hans, Ívar Smári Guðmundsson. 26. desember 2009 14:57