Ármann Þorvaldsson í Berlínarmaraþoni 24. september 2009 03:30 Mikill hiti lék maraþonhlauparana í Berlín grátt en Ármann Þorvaldsson hljóp kílómetrana 42 á þremur klukkustundum og 32 mínútum. „
Ég fékk þetta hlaup í fertugsafmælisgjöf í fyrra frá vini mínum, Þorsteini Páli Hængssyni," segir Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í London, sem tók þátt í Berlínarmaraþoninu á dögunum. Hátt í fjörutíu þúsund manns tóku þátt í hlaupinu í ár en þátttakendur hafa, að sögn skipuleggjanda, aldrei verið fleiri. Ármann, sem undirbýr nú útgáfu á bók um starf sitt fyrir Kaupþing í London, hafði aldrei hlaupið maraþon áður en hann kom til Berlínar en hafði æft stíft fyrir það í ár. „Þetta er mikil þrekraun. Síðustu fimmtán kílómetrana pældi maður mikið í því hvort maður ætti ekki bara að hætta og skella sér á McDonald's," segir Ármann. Forstjórinn fyrrverandi var nokkuð sáttur við tímann sem hann náði en hann hljóp kílómetrana 42 á þremur klukkustundum og 32 mínútum. „Ég ætlaði að reyna að hlaupa undir þremur og þrjátíu," segir Ármann, sem getur þó vel við unað enda voru aðstæður ákaflega erfiðar; heitt var í veðri og mikill mannfjöldi horfði á sem magnaði upp hitann. Athygli vakti að Ármann var skráður doktor á heimasíðu maraþonsins en sú nafnbót á víst ekki við rök að styðjast. „Ég spurði Þorstein að þessu en hann sagðist ekki muna hvort hann hefði skráð mig sem doktor í gríni eða hvort þetta væri bara misskilningur."- fgg
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira