Dóttir Gunnars fékk nær mánaðarlega greitt í níu ár Valur Grettisson skrifar 10. júní 2009 14:55 Gunnar Birgisson bæjarstjóri Kópavogs.
Frjáls Miðlun, fyrirtæki í eigu dóttur Gunnars Birgissonar bæjarstjóra Kópavogs, hefur fengið greitt nær mánaðalega misháar upphæðir frá Kópavogsbæ á níu ára tímabili. Alls fær fyrirtækið ekki greitt í sjö mánuð af 112 mánuðum. Þetta kemur fram á tölfræðivefnum Tíðarandinn.is. Tíðarandinn er með bókhaldsgögn sem ná til ársins 2000 en í skýrslu Deloitte er eingöngu tekið fyrir tímabilið 2003 til 2008. Heildarupphæðin sem Kópavogsbær greiddi Frjálsi miðlun á níu ára tímabili voru rúm 51 milljón króna. Á 112 mánaða tímabili sem Frjáls miðlun átti í viðskiptum við bæinn þá fékk fyrirtækið greitt í 105 mánuði. Frá árinu 2003 til 2008 greiddi bærinn fyrirtækinu 39 milljónir. Ef litið er á upphæðirnar og hvernig þær skiptast þá má sjá að Frjáls miðlun fékk alls fimm sinnum greitt yfir eina milljón króna á tímabilinu 2005 til 2008. Lægsta greiðslan sem þeir fengu greidda voru rétt tæpar 25 þúsund krónur. Þá má finna að meðalgreiðslur almanaksmánaða til Frjálsrar miðlunar voru 460 þúsund krónur á mánuði. Hæsta upphæðin voru 700 þúsund krónur sú lægsta voru 343 þúsund krónur. Meðal þess sem greitt var fyrir var afmælisrit sem kostaði rúmar þrjár milljónir. Það kom þó aldrei út. Formaður nefndarinnar var þáverandi bæjarstjóri Kópavogs, Hansína Ásta Björgvinsdóttir, en hún gegndi formennsku nefndarinnar þangað til í desember 2005. Aðeins tvisvar er minnst á afmælisritið í fundargerðum en það er árið 2004. Þá var Sigurður Geirdal heitinn, þáverandi bæjarstjóri Kópavogs, formaður nefndarinnar. Björn Þorsteinsson var þá sviðstjóri tómstundar- og menningasviðs en hann kvittaði undir reikningana. Hann sagðist ekkert vita um málið þegar haft var samband við hann né hafði Gunnar óskað eftir upplýsingum frá honum líkt og hann hefur gert hjá öðrum sviðstjórum og Hansínu sjálfri.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Erlent Fleiri fréttir Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Sjá meira