Dagur vill sátt við stéttarfélög vegna arðgreiðslna 17. maí 2009 14:19 Dagur B. Eggertsson.
Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, vill ná sáttum við stéttarfélögin sem hafa gagnrýnt stjórn Orkuveitunnar fyrir 800 milljón króna arðgreiðslu á sama tíma og starfsfólk þarf að gangast undir launalækkun. Í tilkynningu sem hann sendi frá sér segir Dagur að deilan sem nú er sprottin upp sé að hluta til samskiptaleysi við borgaryfirvöld að kenna. Þetta samskiptaleysi er farið að trufla aðdraganda viðræðna um stöðugleikasáttamála á vinnumarkaði, að sögn Dags. Dagur segir síðan orðrétt: „Það hlýtur að teljast lykilatriði að borgarstjóri og forysta borgarstjórnar skýri sjónarmið sín fyrir mikilvægum viðsemjendum á vinnumarkaði í stað þess standa í deilum í fjölmiðlum eða hlaupast undan því að skýra afstöðu Reykjavíkurborgar á opinberum vettvangi, einsog nú virðist því miður vera raunin. Þess má geta að borgarstjórn samþykkti síðast liðið haust að haft yrði náið samráð við stéttarfélög af hálfu aðgerðarhópsins." Þarna vitnar hann í frétt Stöðvar 2 í gær sem sagði frá því að Hanna Birna Kristjánsdóttir vildi ekki tjá sig við fjölmiðla vegn arðgreiðslumálsins. Hér má lesa tilkynningu Dags orðrétta: Oddviti Samfylkingarinnr í Reykjavík og fulltrúi í aðgerðarhópi borgarstjórnar vegna breytinga í atvinnu- og efnahagslífi hefur óskað eftir því að efnt verði til funda með fulltrúum stéttarfélaga við fyrsta mögulega tækifæri. Tilefnið eru deilur um arðgreiðslur Orkuveitu Reykjavíkur í borgarsjóð. En þar virðist þögn - og samskiptaleysi borgaryfirvalda - vera farin að trufla aðdraganda viðræðna um stöðugleikasáttamála á vinnumarkaði, líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum. Slíkur sáttmáli er einn af hornsteinum efnahagsstefnu nýrrar ríkisstjórnar og skiptir lykilmáli til að ná samstöðu þjóðarinnar um leðir út úr kreppunni. Það hlýtur að teljast lykilatriði að borgarstjóri og forysta borgarstjórnar skýri sjónarmið sín fyrir mikilvægum viðsemjendum á vinnumarkaði í stað þess standa í deilum í fjölmiðlum eða hlaupast undan því að skýra afstöðu Reykjavíkurborgar á opinberum vettvangi, einsog nú virðist því miður vera raunin. Þess má geta að borgarstjórn samþykkti síðast liðið haust að haft yrði náið samráð við stéttarfélög af hálfu aðgerðarhópsins. Engin sameiginlegur fundur hefur þó verið haldinn, þrátt fyrir ítrekaðar óskir þess efnis af hálfu fulltrúa minnihlutaflokkanna í borgarsjtórn. Formleg beiðni um samráð við stéttarfélög sem sent var formanni aðgerðarhóps Reykjavíkurborgar fylgir hér með: "Ég fer þess eindregið á leit að fulltrúar stéttarfélaga verði kallaðir til samráðsfundar með aðgerðahópi borgarstjórnar. Gert er ráð fyrir slíku samráði í aðgerðaráætlun borgarinnar sem samþykkt var síðast liðið haust en af því hefur því miður ekki orðið. Hefur þó ítrekað verið kallað eftir samráði við stéttarfélög á fundum aðgerðarhóps af hálfu fulltrúa minnihlutaflokkanna í borgarstjórn. Í stað þess að efna til reglulegra samráðfunda virðast stéttarfélög hins vegar mæta þögn af hálfu borgarstjóra og meirihluta borgarstjórnar. Ef marka má fjölmiðla er nú svo komið að vond - eða engin - samskipti Reykjavíkurborgar og stéttarfélaga virðast vera farin að trufla aðdraganda viðræðna um víðtæka þjóðarsamstöðu um stöðugleikasáttmála á vinnumarkaði. Það væri mikið slys. Ef einhver tímann var nauðsyn um að ná breiðri samstöðu um leiðina út úr kreppunni, þá er það við núverandi aðstæður, einsog ný ríkisstjórn hefur undirstrikað. Minnt er á að fyrstu formlegu fundir um stöðugleikasáttamálann eru ráðgerðir á þriðjudag nk. og því er mikilvægt fundum verði komið á hið fyrsta. Það mætti til að mynda gera á fundi aðgerðarhóps, á morgun, mánudag.
Tengdar fréttir Hanna Birna víkur sér undan svörum Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, neitar að tjá sig um arðgreiðslu Orkuveitunnar til Reykjavíkurborgar. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að þetta sé ekki eina erfiða málið þar sem hún víkur sér undan svörum. 16. maí 2009 18:50 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Langar biðraðir á Keflavíkurflugvelli óásættanlegar „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Sjá meira
Hanna Birna víkur sér undan svörum Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, neitar að tjá sig um arðgreiðslu Orkuveitunnar til Reykjavíkurborgar. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að þetta sé ekki eina erfiða málið þar sem hún víkur sér undan svörum. 16. maí 2009 18:50