Spaugstofan leitar Jóhönnu á Umferðarmiðstöðinni 25. september 2009 08:30 Spaugstofumenn leituðu ásamt „erlendum fjölmiðlamönnum“ að Jóhönnu Sigurðardóttur á Umferðarmiðstöðinni í gær. Spaugstofan er búin að vera að í rúma tvo áratugi og eru þeir Örn Árnason, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson enn í fullu fjöri. Fréttablaðið/stefán
Spaugstofan fer á fullt á laugardaginn þegar 20. þáttaröðin hefst. Örn Árnason lofar að þeir muni halda uppteknum hætti í allan vetur við að snúa tilverunni á haus. Tökulið Spaugstofunnar var á BSÍ þegar Fréttablaðið hafði upp á Erni Árnasyni. Þeir voru þá að leita að Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. „Nei, það verða ekki miklar áherslubreytingar, við vinnum bara einn þátt í einu og ætlum að taka hressilega á ástandinu,“ segir Örn en í bakgrunni mátti heyra félaga hans skeggræða um næstu skref. Örn, Pálmi Gestsson, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson hafa í rúma tvo áratugi skemmt landsmönnum á laugardagskvöldum og eftirspurnin eftir hárbeittu gríni þeirra hefur sennilega aldrei verið meiri, allavega eins og staða þjóðmála er um þessar mundir. „Við ætlum bara að reyna að gleðja mann og annan með ömurlegum fréttum,“ segir Örn og hlær. „ Nei, nei, við höldum bara uppteknum hætti og reynum að finna skemmtilega fleti á þjóðmálunum.“ Hann kveðst síður en svo vera kominn með nóg af Spaugstofugríninu en verður ósköp þögull þegar hann er spurður hvort þetta sé síðasta „undirbúningstímabil“ hópsins. „Ég veit ekki, ætli það sé ekki bara best að segja sem minnst, það virðist samt alltaf vera þörf fyrir svona fyrirbæri.“ Og fyrst Örn er nú á línunni er ekki úr vegi að spyrja hann hvernig honum lítist á að taka við ritstjórastöðu Morgunblaðsins í Hádegismóum. Enda Örn einhver þekktasta Davíð Oddsson-eftirherma landsins. „Ég verð að fara að leita að kollunni minni, hún er að rykfalla í einhverri kompu, vonandi er allt í lagi með hana; svona ef þetta gengur allt saman eftir eins og menn eru að spá,“ segir Örn. Að öllu gamni slepptu segir Örn að fyrsti þátturinn verði hefðbundinn Spaugstofuþáttur, engir gestaleikarar heldur bara þeir fjórir. „Þema-þættir og gestirnir koma bara síðar, við ætlum líka bara að spila þetta eftir eyranu.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira