Sonur minn er hetja 2. júní 2009 04:15 Þjófarnir komust inn um opna svalahurð á heimili Steinunnar og fjölskyldu. Hún segir mikilvægast að allir séu heilir á húfi.fréttablaðið/anton „
Sumir hefðu líklega lyppast niður og ekki getað gert neitt, en Viktor sýndi að hann kann að bregðast rétt við í hættuástandi. Ég er mjög stolt af honum og finnst hann vera hetja,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir, sem býr ásamt manni sínum, Leifi Birni Björnssyni, og börnum við Lækjarhvamm í Hafnarfirði. Viktor Már Leifsson, sautján ára sonur þeirra hjóna, komst undan á flótta undan barsmíðum og frelsissviptingu þegar brotist var inn á heimilið á sunnudagseftirmiðdag. Tveir menn um tvítugt voru handteknir grunaðir um verknaðinn. Annar þeirra kom við sögu í hrottafengnu innbroti við Barðaströnd á Seltjarnarnesi í síðustu viku. Þeir hafa báðir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Viktor var sofandi í herbergi sínu þegar hann heyrði umgang. Þegar fram kom gekk hann fram á mann sem var að setja tölvur og fleiri muni í poka. Viktor reyndi að tala við og róa manninn, sem var greinilega undir áhrifum eiturlyfja að sögn Steinunnar. Þjófurinn réðst að Viktori, sló og sparkaði í hann, og skipaði honum að halda sig í jörðinni og hélt svo iðju sinni áfram. Þegar færi gafst tók Viktor á rás og tókst með snarræði tvisvar sinnum að skella hurðum á hendur þjófsins þegar hann var í þann mund að ná Viktori. Hann komst svo í nálægt hús þar sem hringt var á lögreglu. Þjófurinn komst undan með fartölvu. Hann og vitorðsmaður hans voru handteknir stuttu síðar í nágrenninu. Þeir eru grunaðir um að vera viðriðnir að minnsta kosti fimm önnur innbrot að undanförnu, þar á meðal því á Seltjarnarnesi. Þar var karlmaður á áttræðisaldri beittur ofbeldi. Steinunn segir hafa betur farið en á horfðist. „Viktori líður vel en þetta var auðvitað mikið áfall. Hann brást hárrétt við með því að berjast ekki á móti þjófinum í byrjun, sem hann hefði vel getað gert því hann hefur æft sjálfsvarnaríþróttir. Maður veit aldrei hverju menn undir áhrifum fíkniefna taka upp á.“ Steinunn segir vikuna hafa verið viðburðaríka, því hún og maður hennar misstu bæði vinnuna á miðvikudag, hann hjá tölvufyrirtæki og hún sem aðstoðarsjónvarpsstjóri ÍNN. „Þetta eru þrjú áföll í röð. Tími breytinga en líka nýrra tækifæra sem bíða. Það mikilvægasta er að allir eru heilir á húfi og hafðar voru hendur í hári manna sem þurfa greinilega á hjálp að halda,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir. kjartan@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Sjá meira