Fyrirtæki uggandi - fundað um stöðugleika í kvöld 2. júní 2009 19:17
Mörg fyrirtæki eru uggandi yfir óvissu á vinnumarkaði og sjá ekki fyrir hvernig unnt verður að greiða út launahækkanir. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins útiloka ekki að til átaka geti komið ef ekki næst saman um stöðugleikasáttmála. ASÍ og SA hafa átt í viðræðum um sérstakan stöðugleikasáttmála, en að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ hanga þær nú á bláþræði. Helsta þrætueplið eru launahækkanir sem krafist er að komi til 1. júlí, í samræmi við kjarasamninga, en Samtök atvinnulífsins vilja slá þeim á frest. „Það er ekkert svigrúm en við erum að reyna að búa til eitthvert ljós í myrkrinu. ekki bara fyrir starfsfólkið heldur líka fyrir fyrirtækin. Hvernig hægt er að reka fyrirtækin áfram á Íslandi," segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins. Margt hangir á spýtunni, segir Vilhjálmur, ekki síst aðgerðir stjórnvalda í ríkisfjármálum, vaxtalækkun, viðunandi bankastarfsemi, afnám gjaldeyrishafta og aðgangur að erlendu lánsfé, svo fátt eitt sé nefnt. Viðræðuaðilum hefur verið kynnt staðan í fjármálum ríkisins og sagðist fjármálaráðherra - í samtali við fréttamenn í dag - vona að menn næðu saman, stöðugleiki á vinnumarkaði væri gríðarlega mikilvægur og ekki á óvissuþættina bætandi. Samráðsfundur verður haldinn með forystumönnum stjórnvalda í kvöld og er enginn á því að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. „Við höldum okkar striki og reynum þangað til í ljós kemur að þetta er ekki hægt," segir Vilhjálmur. Viðræðuaðilar gera sér hins vegar grein fyrir því að brugðið getur til beggja vona. „Ég held að yrði mjög óheppilegt ef við næðum ekki saman. Ég get fullvissað þig um það að það eru mörg fyrirtæki uggandi yfir framhaldinu. Menn sjá það ekki fyrir hvernig þeir geti greitt út launahækkanir. Skiptir mjög miklu máli að allur pakkinn gangi upp," segir Vilhjálmur. Spurður hvort Vilhjálmur óttist að til átaka kunni að koma á vinnumarkaði svarar hann: „Ég geri mér grein fyrir þvi að það er alveg hugsanlegt já."
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira