Mínuslausn segir ASÍ 2. júní 2009 03:30 Málin rædd Gylfi Arnbjörnsson, Vilhjálmur Egilsson og aðrir forystumenn launþega og atvinnurekenda standa í ströngu þessa dagana. Fréttablaðið/GVA
Viðræður fulltrúa Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands um kjaramál halda áfram í dag eftir hlé um hvítasunnuhelgina. Mikið bar í milli um lausn málsins fyrir helgi. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir fulltrúa aðildarfélaga ASÍ vilja að staðið verði við gerða samninga. Gylfi segir að í ljósi þróunar verðlags og launa undanfarna tólf mánaða séu launþegar í raun að bjóðast til að taka á sig kaupmáttarlækkun með því að biðja ekki um meiri hækkanir en felist í gildandi samningi. „Þegar kaupmáttur lækkur er launahlutfallið í rekstri fyrirtækjanna að lækka, þannig að við erum ekki að tala um neina núlllausn heldur að sætta okkur við stóra mínuslausn," segir forseti ASÍ. Samkvæmt gildandi kjarasamningi aðildarfélaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hefðu kauptaxtar ófaglærðra átt að hækka um 13.500 krónur og taxtar iðnaðarmanna um 17.500 krónur hinn 1. mars síðastliðinn. Umsamin launaþróunartrygging var 3,5 prósent. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir tillögu SA nú vera þá að greiða helming taxtahækkunarinnar 1. júlí og hinn helminginn 1. nóvember og þá taki launaþróunartryggingin einnig gildi. Hækkanir sem taki eigi gildi 1. janúar á næsta ári flytjist til 1. september 2010. „Við gerum þetta í trausti þess að rekstrarskilyrði atvinnulífsins batni. Ef ekkert breytist er þetta náttúrlega alveg vonlaust," segir Vilhjálmur. ASÍ hefur hafnað þessari tillögu SA.- gar
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira