Innlent

Vilhjálmur endurkjörinn forseti

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, var í dag endurkjörinn forseti borgarstjórnar til loka yfirstandandi kjörtímabils. Vilhjálmur tók við sem forseti þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu meirihluta á nýjan leik í ágúst í fyrra.

Vilhjálmur hlaut níu atkvæði en sex atkvæði voru auð. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, hlaut 15 atkvæði í kjöri til 1. varaforseta og þá var Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kjörinn 2. varaforseti.

Á borgarstjórnarfundinum var Guðlaugur Sverrisson endurkjörinn formaður stjórnar Orkuveitunnar. Kjartan verður áfram varaformaður en aðrir í stjórninni eru Júlíus Vífill Ingvarsson, Sigrún Elsa Smáradóttir og Þorleifur Gunnlaugsson.

Þá voru Óskar Bergsson, Vilhjálmur, Kjartan, Júlíus Vífill, Dagur, Björk Vilhelmsdóttir og Þorleifur kjörin í borgarráð til eins árs.

Í framhaldinu kvaddi Björk sér hljóðs og vakti athygli á kosningunni og því sem hún kallaði óeðlileg kynjahlutföll í borgarráði. Jafnframt skoraði hún á meirihlutann að ráða bót á málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×