Innlent

Kínversk stjórnvöld óánægð með fundi Dalai Lama

Dalai Lama á fyrirlestri í Laugardalshöll.
Dalai Lama á fyrirlestri í Laugardalshöll. Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Sendiherra Kína gekk á fund ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins í morgun og kom á framfæri óánægju kínverskra stjórnvalda og sendiráðsins vegna þeirra funda sem Dalai Lama hefur átt eða kann að eiga með íslenskum ráðamönnum.

Þetta er haft eftir Urði Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðuneytisins en sendiherrann tilkynnti ekki um neinar frekari aðgerðir vegna heimsóknarinnar af hálfu sendiráðs Kína.

Ekki náðist í sendiráð Kína vegna málsins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×