Innlent

Enn óljóst með endurgreiðslur

Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson

Ekki liggur fyrir hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefur endurgreitt 30 milljóna króna styrk frá Fl-Group og 25 milljóna styrk frá Landsbankanum sem flokkurinn fékk árið 2006. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði fyrir kosningar að þessir styrkir yrðu endurgreiddir fyrir 1. júní.

Hvorki náðist í Bjarna né Grétu Ingþórsdóttur, framkvæmdastjóra flokksins, í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður staðfestir að stefnt hafi verið að því að ljúka málinu fyrir gærdaginn en segir það í höndum Bjarna. „Hann mun segja nákvæmlega hvernig þetta verður gert,“ segir varaformaðurinn. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×