Innlent

Hanna Birna: Ársreikningur sýnir styrka fjármálastjórn

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag að rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar sýna styrka fjármálastjórn borgarinnar en ársreikningur 2008 var lagður fram á fundinum. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði aftur á móti í umræðunum í dag að núverandi meirihluti hefði sett Íslandsmet í hallarekstri.

Fram kemur í tilkynningu frá borginni að rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var jákvæð um ríflega 2,3 milljarða þrátt fyrir rúmlega 8 milljarða lægri tekjur af sölu byggingaréttar, mikla verðbólgu og mikla gengislækkun íslensku krónunnar á árinu.

Haft er eftir Hönnu Birnu að Reykjavíkurborg og stjórnendur hennar verði seint sakaðra um seinagang í viðbrögðum við breyttum aðstæðum.

„Snemma á árinu 2008 komu fram ýmis teikn um breytt ytri skilyrði miðað við forsendur fjárhagsáætlunar og hófu stjórnendur fyrir mitt síðasta ár margvíslegar aðgerðir til að draga úr útgjöldum. Niðurstöður ársreiknings bera þess skýran vitnisburð enda flest sviðin innan fjárhagsramma þrátt fyrir gjörbreyttar verðlags- og gengisforsendur seinni hluta ársins.

Helstu niðurstöður í rekstri A hluta Reykjavíkur

Rekstrarniðurstaða A hluta eftir fjármagnsliði var jákvæð um 2,3 milljarða. Fjárhagsáætlun gerði hins vegar ráð fyrir 10,9 milljarða jákvæðri afkomu og skýrist mismunurinn einkum af því að áætluð sala á byggingarétti gekk ekki eftir árið 2008.

Rekstrartekjur A hluta námu tæplega 59 milljörðum króna en áætlun gerði ráð fyrir 66,8 milljörðum. Þar af námu skatttekjur 50,9 milljörðum króna en þær voru 45,9 milljarðar árið 2007.

Rekstargjöld A hluta námu 56,7 milljörðum sem var um 2,5 milljörðum undir áætlun, sem skýrist að mestu af tekjufærslu á breytingu lífeyrisskuldbindingar um 1,1 milljarð í stað áætlunar um gjaldfærslu.

Helstu niðurstöður í rekstri samstæðu borgarinnar

Rekstrarniðurstaða samstæðunnar var neikvæð um 71,5 milljarð króna en var jákvæð árið 2007 um 16,9 milljarða. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 10,1 milljarða tekjuafgangi. Rekstrarniðurstaðan er því 81,6 milljörðum lakari en áætlun gerði ráð fyrir. Viðsnúningur í rekstri skýrist einkum af reiknuðu gengistapi Orkuveitu Reykjavíkur.

Heildareignir A og B hluta námu 388 milljörðum króna en voru í árslok 2007 um 314 milljarðar króna. Fastafjármunir námu um 359 milljörðum króna og veltufjármunir námu 29 milljörðum.

Heildarskuldir samstæðunnar voru um 272 milljarðar en námu í árslok 2007 um 155 milljörðum. Hækkun skulda skýrist einkum af gengisáhrifum.

Eigið fé var nær 116 milljarðar en var 159 milljarðar í árslok 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×