Bankarnir sagðir koma í veg fyrir fasteignaviðskipti 2. júní 2009 04:00 Misræmi í vinnulagi og stefnu bankanna gerir fasteignasölum og viðskiptavinum þeirra erfitt fyrir og ekki var á það bætandi, segja fasteignasalar. fréttablaðið/stefán
Fasteignasalar óska eftir því að bankar skýri þau sjónarmið sem ráði ákvörðunum þeirra varðandi fasteignalán, veðflutninga og yfirtökur. Eftir að bankarnir voru ríkisvæddir er ógerningur að gera sér grein fyrir sjónarmiðum bankanna sem geri fasteignasölum og viðskiptavinum þeirra erfitt fyrir. Þetta segja Ólafur Blöndal, eigandi fasteign.is, Óskar R. Harðarson, framkvæmdastjóri Mikluborgar, og Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala. „Bankarnir eru allir í ríkiseigu svo það er í hæsta lagi óeðlilegt að þeir hafi ólíka stefnu, hvað þá að hún sé breytileg eftir útibúum,“ segir Ólafur. Samningum sem virðast borðleggjandi sé hafnað af bönkunum og segjast þau ekki sjá á hvaða forsendum. „Hvaða tilgangi þjónar það til dæmis,“ spyr Ólafur, „að hafna fólki sem vill minnka við sig og lækka sínar skuldir með því að selja eign sína og fá ódýrara húsnæði upp í og borga lánið niður með milligjöfinni? Það minnkar við sig, lækkar skuldir, heldur sama veðhlutfalli en er samt hafnað.“ Óskar segist einnig kannast vel við þennan vanda og segir fjögur til fimm nýleg dæmi um slík mál þar sem sínum viðskiptavinum hafi verið hafnað. „Ekki er verið að ganga út frá hagsmunum viðskiptavinarins í slíkum tilfellum,“ segir Óskar. „Því spyrjum við þeirrar einföldu spurningar hvaða sjónarmið það séu þá sem ráði? Þetta er í hrópandi ósamræmi við það sem Steingrímur J. Sigfússon [fjármálaráðherra] hefur sagt um að bankar ættu ekki að horfa svo mikið í eiginfjárstöðu hjá fólki heldur greiðslugetu þess.“ Þau segja enn fremur að fyrir bankahrun hafi útibússtjórar haft mun meira ákvörðunarvald. Nú hafi það verið fært en ekki sé alltaf ljóst hvert. Það hafi orðið til þess að afgreiðsla taki mun meiri tíma og oft sé erfitt að fá upplýsingar, til dæmis um forsendur höfnunar.jse@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Sjá meira