Innlent

Borgarahreyfingin treystir ekki skilanefndunum

Valur Grettisson skrifar
Þór Saari treystir ekki skilanefndum.
Þór Saari treystir ekki skilanefndum.

„Við treystum því ekki að skilanefndirnar séu í lagi," segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, spurður út í fjármálagjörning skilanefndar Landsbankans sem var stöðvaður eftir að fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá fyrirhuguðum kaupum Reykjavík Invest í stofnfjárbréfum Byrs.

Kaupin voru stöðvuð á mánudagskvöldinu en þá þegar var búið að færa upplýsingarnar inn á lista Byrs yfir stofnfjáreigendur.

Útskýring skilanefndarinnar var einföld; starfsmaður bankans fór fram úr sér. Lárus, sem var einnig endurskoðandi Reykjavík Invest, vissi ekki af málinu að sögn upplýsingafulltrúa.

„Mér finnst skilanefndirnar hafa starfað einkennilega alveg frá upphafi," segir Þór og áréttar að Borgarahreyfingin vilji setja lög sem gera þeim kleyft að endurskoða alla fjármálagjörninga síðustu tveggja ára - þar með talið viðskiptaákvarðanir skilanefndanna.

Sjálfur vill Þór fyrst og fremst auka á gangsæi skilanefnda viðskiptabankanna þriggja.

„Maður hefur allavega ekkert séð til þeirra þannig ég veit ekki eftir hvaða verklagsreglum þeir starfa eftir né hverjir hafa aðang að skilanefndarmönnunum," segir þór að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×