Segir aðferðir PAS falsvísindi Karen Kjartansdóttir skrifar 26. nóvember 2009 19:34 Gunnar Hrafn Birgisson.
Hætt er við því að hagsmunir barna verði fyrir borð bornir nái tillögur Félags um foreldrajafnrétti fram að ganga, segir Gunnar Hrafn Birgisson, sálfræðingur. Aðferðirnar sem félagsmenn vilji að teknar séu upp byggi á falsvísindum sem varað hafi verið við. Félag um foreldrajafnrétti hefur undanfarið knúið á um að svonefndum P-A-S aðferðum verði beitt í forsjár- og umgengnismálum um börn. Þetta er hins vegar varhugavert að mati Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings. Áhrif þessara kenninga hafi aukist í forsjár- og umgengnisdeilum hér, sem sé áhyggjuefni. Hann fjallar ítarlega um þessi mál í grein í nýjasta hefti Tímarits lögfræðinga og bendir á að ósannindi og misskilningur hafi ríkt um þessi mál hérlendis. Kenningin gengur meðal annars út að meirihluti ásakanna mæðra á hendur föður sé tilbúningur sem síðan smitist til barnanna. Það hafi haft alvarlegar afleiðingar. "Þessi kenning hefur leitt til þess að börn hafa ekki verið tekin trúanleg og mæður ekki heldur í mörgum forsjárdeilumálum. Erlendis hefur það gerst að ofbeldismönnum hefur verið dæmd forsjá barna og rannsóknir á bak við þessa PAS-kenningu eru engar. Þetta er hugarsmíð eins manns sem setti fram og skrifaði um þetta bækur en það hefur aldrei verið sýnt fram á að það sé grundvöllur fyrir þessu og sömuleiðis hefur þessari kenningu verið hafnað í flokkunarkerfi bandaríska geðlæknafélagsins þeir neituðu að taka þetta þar inn, ameríska sálfræðingafélagið hefur varað við þessu og dómarar í Bandaríkjunum er nú búnir að vísa því frá að það megi nota þetta PAS-hugtak fyrir rétti þar svo alvarlegar afleiðingar hefur þetta haft," segir Gunnar Hrafn. Hugtakið PAS sé að mestu hugarburður manns sem þóttist vera háskólakennari, til að réttlæta kynferðislegt samband fullorðna við börn, segir Gunnar. Í Félagi um foreldrajafnrétti hefur því verið haldið fram að réttarstaða íslenskra karla sé trúlega sú lakasta í vestrænum heimi. Gunnar segir að það verði félagsmenn að úrskýra betur. Hér á landi hafi náðst mjög góður árangur í að sætta foreldra og mikil áhersla lögð á það. Í grein Gunnars kemur fram að við athugun á héraðsdómum kemur fram að feður fengu forsjá barna í 40 prósentum tilvika en mæður í sextíu. Í þeim forsjármálum sem ekki náðist að sætta fyrir Héraðsdómi Reykjaness fengu feður dæmda til sín forsjá oftar en mæður. "Þannig það hefur ekki verið rökstutt að feður standi höllum fæti. Þetta hefur verið fullyrt en rökstuðningur á bak við það er ekki fyrir hendi," segir Gunnar.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira