Slökkviliðsdeila í Árborg: Öryggi íbúa tryggt 12. maí 2009 17:58 Margrét K. Erlingsdóttir
Margrét K. Erlingsdóttir formaður Brunavarna Árborgar segir að öryggi íbúa sé tryggt þrátt fyrir að fimmtán slökkviliðsmenn hafi sagt upp störfum, en þeir munu hætta um næstu mánaðarmót. Nokkuð harðvítugar deilur hafa staðið milli slökkvliðsmannanna og yfirstjórnar en þeir sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem skorað er á stjórnina og slökkviliðsstjórann að segja af sér. Deilan snýst, samkvæmt ályktun þeirra, um samskiptaörðugleika og trúnaðarbrest. Í yfirlýsingu frá Margréti er slökkviliðsmönnunum svarað fullum hálsi og út úr henni má lesa að ekki verði orðið við áskorun þeirra. Þar segir meðal annars að slökkviliðsstjórinn hafi ekki brotið af sér í starfi eða farið út fyrir samþykktir stjórnar. „Stjórn og fulltrúaráð eru kjörin af sveitarfélögum sem eru eigendur BÁ og hafa þau ekki lýst neinu vantrausti á okkar störf. Það er aldrei einum að kenna er tveir deila, mál sem þessi eru innanhúsmál sem auðvelt er að leysa ef báðir aðilar vinna að þeim," segir í yfirlýsingunni frá Margréti. Þá kemur einnig fram að BÁ hafi auglýst eftir starfsmönnum í stað þeirra sem ákveðið hafa að hverfa til annarra starfa og hafa borist á annan tug umsókna en nýir slökkviliðsmenn verða ráðnir, þjálfaðir og menntaðir í samstarfi við Brunamálastofnun sem hefur boðið fram aðstoð síðan. „Meðan á þjálfun stendur verður sett upp öryggisáætlun með núverandi slökkviliði sem og slökkviliðum í nærsveitum og á höfuðborgarsvæðinu. Undirbúningur að þessari áætlun er þegar hafinn og mun öryggi íbúa verða tryggt." Þá segir að það sé mikil einföldun að setja fram þá kröfu sem starfsmaður að maður ætli að hætta störfum ef yfirmaður manns verður ekki rekinn. „Það einfaldlega virkar ekki þannig í fyrirtækjum og stofnunum. Maður velur sér starfsvettvang af fúsum og frjálsum vilja, ef manni líkar ekki sú yfirstjórn sem þar er getur maður valið að hætta. En það er með eindæmum að menn skuli telja það nauðsynlegt að ráðast með þessum hætti að vinnustaðnum í stað þess að hverfa til annarra starfa." Hægt er að sjá Yfirlýsinguna í heild sinni hér að neðan.
Tengdar fréttir Slökkviliðsdeila: Formaður vill ekki tjá sig „Ég vil ekki tjá mig um málið því ég er ekki búin að lesa yfirlýsinguna," svarar Framsóknarkonan Margrét K. Erlingsdóttir og formaður Brunavarna Áborgar um harðvítuga deilu slökkviliðsmanna í Árborg við stjórnina og slökkviliðsstjóra. Alls hafa fimmtán slökkviliðsmenn sagt upp störfum og munu þeir láta af störfum nú um næstu mánaðarmót. 11. maí 2009 16:30 Slökkviliðsmenn í Árborg telja öryggi íbúa í hættu Slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Árborgar (BÁ) lýsa yfir vantrausti á yfirstjórn Brunavarna Árborgar og slökkviliðstjóra og óska eftir því að þeir segi af sér hið fyrsta. 11. maí 2009 13:40 Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira
Slökkviliðsdeila: Formaður vill ekki tjá sig „Ég vil ekki tjá mig um málið því ég er ekki búin að lesa yfirlýsinguna," svarar Framsóknarkonan Margrét K. Erlingsdóttir og formaður Brunavarna Áborgar um harðvítuga deilu slökkviliðsmanna í Árborg við stjórnina og slökkviliðsstjóra. Alls hafa fimmtán slökkviliðsmenn sagt upp störfum og munu þeir láta af störfum nú um næstu mánaðarmót. 11. maí 2009 16:30
Slökkviliðsmenn í Árborg telja öryggi íbúa í hættu Slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Árborgar (BÁ) lýsa yfir vantrausti á yfirstjórn Brunavarna Árborgar og slökkviliðstjóra og óska eftir því að þeir segi af sér hið fyrsta. 11. maí 2009 13:40