Innlent

Þing sett í dag

Lögreglumenn mynda heiðursvörð fyrir þingmenn. Mynd/ Baldur Hrafnkell.
Lögreglumenn mynda heiðursvörð fyrir þingmenn. Mynd/ Baldur Hrafnkell.
Setning Alþingis hófst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö. Á meðan henni stendur býður félagsskapurinn Siðmennt þeim þingmönnum, sem ekki sækja messuna að koma á Hótel Borg og hlíða á hugvekju um mikilvægi góðs siðferðis í þágu þjóðar, eins og það er orðað. Að messu lokinni mun aldursforseti þingsins, sem er Jóhanna Sigurðardóttir, stjórna kjöri kjörbréfanefndar, en að því loknu verður þingfundi frestað til klukkan fjögur.

Alls taka 27 nýir þingmenn nú sæti á Alþingi. Eftir fundarhlé verða kjörbréf afgreidd og nýi þingmenn undirrita drengskapareið. Síðan verður kosið í fastaanefndir Alþingis og varpað hlutkesti um sæti þingmanna. Facebook hópur undir einkunnarorðunum: Veitum flóttamönnum skjóta og sanngjarna málsmeðferð, ætlar að efna til mótmæla við Alþingishúsið á meðan á þingsetningu stendur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×