Innlent

Aftur orðin aðstoðarmaður

Gylfi Magnússon líkar greinilega við Helgu Valfells.
Gylfi Magnússon líkar greinilega við Helgu Valfells.

Helga Valfells hefur verið ráðin á ný sem aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Hún hætti rétt eftir kosningar 25. apríl, ásamt Þorfinni Ómarssyni fjölmiðlafulltrúa.

„Ég byrjaði núna fyrir tíu dögum. Byrjaði að vinna annars staðar 1. maí en var komin vel inn í nokkur verkefni hér og best var að ég myndi fylgja þeim eftir," segir Helga. Hún tekur jafnframt fram að mjög gott sé að vinna með Gylfa.

Þorfinnur Ómarsson mun hins vegar ekki snúa aftur í starf fjölmiðlafulltrúa.- vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×