Innlent

Þjófur úrskurðaður í síbrotagæslu

Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 4. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn fyrir nytjastuld í Reykjavík í gær en þá hafði hann stolið bíl og það ekki í fyrsta sinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var þetta fjórði bíllinn sem viðkomandi stal á fáeinum dögum en maðurinn hefur margoft komið við sögu hjá lögreglu vegna ýmissa mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×