Innlent

Bílvelta á Hrunavegi við Flúðir

Bílvelta varð á Hrunavegi rétt við Flúðir um hálf eitt leytið í dag. Ein kona var í bílnum en hún var flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki vitað um meiðsli konunnar né hvernig bílveltan bar að.

Þá var lögreglan á Selfossi við eftirlit í morgun og stöðvaði hátt í 200 bíla á Suðurlandsvegi við Biskupstungnaafleggjara. Einn ökumaður reyndist sviptur ökuréttindum en aðrir voru í góðu lagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×