Enski boltinn

Tottenham slátraði Wigan - Defoe með fimm mörk

Ómar Þorgeirsson skrifar
Jermain Defoe.
Jermain Defoe. Nordic photos/AFP

Tottenham vann ótrúlegan 9-1 sigur gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í dag en staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Tottenham.

Jermain Defoe skoraði fimm mörk fyrir Tottenham í leiknum en þrjú þeirra komu á sjö mínútna kafla snemma í síðari hálfleiknum.

Peter Crouch, Aaron Lennon og Niko Kranjcar skoruðu eitt mark hver og síðan gerðu Wigan eitt sjálfsmark. Mark Wigan í leiknum skoraði Paul Scarner.

Með sigrinum skaust Tottenham upp í fjórða sæti deildarinnar en þetta var stærsti sigur liðsins í ensku úrvalsdeildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×