Innlent

Á annað hundrað reiðhjól á uppboði

Frá reiðhjólauppboði lögreglunnar árið 2007.
Frá reiðhjólauppboði lögreglunnar árið 2007. Mynd/Anton Brink

Um 150 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstkomandi laugardag.

Að þessu sinni verða eingöngu boðin upp reiðhjól enda safnast þau upp hjá lögreglunni sem aldrei fyrr, að fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Um er að ræða hjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja.

„Væntanlega verður líf og fjör við Askalind 2a í Kópavogi nk. laugardag enda á uppboð lögreglunnar sér langa sögu og á þeim er jafnan múgur og margmenni. Uppboðið er haldið í skjólgóðu porti sem þarna er og því ætti veðrið ekki að setja strik í reikninginn."

Uppboðið hefst klukkan 13.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×