Ásta Ragnheiður keppir við strákana 28. febrúar 2009 15:57 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, gefur kost á sér í 4.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar. Því er ljóst að hart verður barist um fjórða sætið en sá sem það hreppir mun skipa annað sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Líkt og Vísir hefur greint frá sækjast þeir Mörður Árnason, Helgi Hjörvar og Skúli Helgason einnig eftir umræddu fjórða sæti. Í tilkynningu frá Ástu Ragnheiði segir að aldrei hafi verið mikilvægara að standa vörð um þá sem standa höllum fæti en nú. Einnig sé mikilvægt að berjast gegn félagslegum afleiðingum efnahagsþrenginganna á heimilin, fjölskyldurnar og ekki síst börnin. „Ég tel mikilvægt að við endurreisn íslensks efnahagslífs verði einnig hugað að hag fatlaðra og aldraðra. Þá er brýnt að tryggja jafnrétti kynjanna í starfinu framundan og mikilvægt að grípa til frekari aðgerða til að draga úr auknu atvinnuleysi. Velferðarmál hafa ávallt verið mín hjartans mál og þau endurspeglast í störfum mínum á Alþingi. Þar hef ég setið í 14 ár og unnið markvisst að bættri velferðarþjónustu með flutningi þingmála, veitt stjórnvöldum aðhald og m.a. setið í heilbrigðis-, félagsmála- og trygginganefnd þingsins. Áður starfaði ég hjá Tryggingastofnun ríkisins og þekki því málaflokkinn mjög vel. Krafa um endurnýjun í íslenskum stjórnmálum er skiljanleg en ekki er síður mikilvægt að reynsla og þekking sé til staðar þar sem mikilvægar ákvarðanir eru teknar. Ég er reiðubúin að halda áfram þeim mikilvægu störfum sem ég hef sinnt undanfarið og tilkynni þátttöku í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum sem fram fer 9.-14. mars nk. Ég sækist eftir 2. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í öðru hvoru kjördæmanna í komandi alþingiskosningum og stefni því á 4. sætið í prófkjörinu."
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira