Innlent

Ástarljóð á Laugaveginum

Hátt í aldargamalt ástarbréf frá einu af ástsælustu skáldum þjóðarinnar og rímuð ástarljóð eru á meðal þess sem nú má finna í verslunargluggum á Laugaveginum.

Bréfin eru afrakstur söfnunar á ástarbréfum og ástarjátningum sem staðið hefur yfir síðan í mars. Um er að ræða samstarfsverkefni Sunnu Dísar Másdóttur, mastersnema í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands, og Landsbókasafnsins. Nokkur þeirra bréfa sem þegar hafa safnast eru til sýnis í gluggum verslana við Laugaveginn um helgina en söfnunin stendur fram í ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×