Innlent

Tekinn vegna stórfellds fíkniefnainnflutnings

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar
Fíkniefni. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Fíkniefni. Myndin tengist ekki fréttinni beint.

Karlmaður á þrítugsaldri hefur setið í gæsluvarðhaldi síðustu tvær vikur vegna gruns um aðild að innflutningi á rúmlega 5 kílóum af hörðum fíkniefnum.

Maðurinn var handtekinn þann 22. maí síðastliðinn og var úrskurðaður í gæsluvarðhald til annars júní. Lögreglan hefur nú farið fram á að gæsluvarðhaldinu verði framlengt til 12. júní vegna rannsóknarhagsmuna.

Maðurinn hefur kært úrskurðinn en hann afplánar nú gæsluvarðhaldið á litla Hrauni. Fíkniefnalögreglan vill ekki veita frekari upplýsingar um málið en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur maðurinn, sem er á þrítugsaldri, áður komið við sögu lögreglu.

Þá herma heimildir fréttastofu að um sé að ræða rúmlega 5 kíló af hörðum fíkniefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×