Innlent

Kjarkleysi og ákvarðanafælni óviðunandi

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Mynd/Pjétur

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ósatt með ríkisstjórnina og segir að það hafi verið dapurt að hlusta á forsætis- og fjármálaráðherra í umræðum um skýrslu forsætisráðherra um efnahagsmál í gær. Hún segir að í pólitík greini fólk á um leiðir en kjarkleysi og ákvarðanafælni sé óviðunandi.

„Við sitjum enn uppi með að efnahagsreikningur ríkisbankanna þriggja er óklár, gjaldeyrisójafnvægi ógnar og þetta þýðir einfaldlega að súrefni til atvinnulífsins og heimila er ekki fyrir hendi,“ segir Ragnheiður í pistli á heimasíðu sinni.

Ragnheiður bendir á að stjórnarflokkarnir hafi haft tækifæri allt frá því í byrjun febrúar til að bregðast við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×