Innlent

Ók á þreföldum hámarkshraða í átt að Hafnarfirði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan veitti ökumanni eftirför á Hafnarfjarðarvegi í átt til Hafnarfjarðar um hálfsexleytið í morgun.

Ökumaður sinnti ekki ítrekuðum tilmælum lögreglum um að stöðva og ók um tíma á 140-150 kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund Hann endaði svo för sína með því að aka þvert yfir hringtorg við Arnarhraun og varð bíllinn óökufær eftir það.

Þá reyndi ökumaðurinn að flýja á hlaupum en lögreglumenn náðu honum fljótt. Hann var í annarlegu ástandi og gistir nú fangageymslur lögreglu. Um stolið öktæki var að ræða og fannst í því umtalsvert magn af ætluðu þýfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×