Innlent

Framtíð nýju bankanna teflt í tvísýnu

Vilhjálmur Egilsson er framkvæmdastjóri SA, sem telja að grundvelli bankanna sé teflt í tvísýnu. Mynd/ Rósa.
Vilhjálmur Egilsson er framkvæmdastjóri SA, sem telja að grundvelli bankanna sé teflt í tvísýnu. Mynd/ Rósa.


Athuganir sem gerðar hafa verið á ársreikningum fyrirtækja í sjávarútvegi hafa leitt til þeirrar niðurstöðu að 5% upptaka heimilda hefði það alvarleg áhrif á fjölda fyrirtækja að þau myndu ekki geta staðið í skilum með skuldir sínar. Þetta fullyrða forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins í nýjum pistli sem birtist á vefsíðu þeirra.

Samtök atvinnulífsins segja að fyrningarleiðin myndi fljótlega leiða til þess að mörg sjávarútvegsfyrirtæki yrðu gjaldþrota. Þar með væri grundvelli nýju bankanna teflt í tvísýnu. Það sé því mikill ábyrgðarhluti að skrifa slíka stefnu inn í stjórnarsáttmála án þess að fram hafi farið ítarlegt mat á áhrifum svo róttækrar stefnubreytingar í sjávarútvegsmálum.

„Ef fyrningarleið stjórnarflokkanna yrði framkvæmd og hún hefði þær afleiðingar sem óttast er þá myndu margir núverandi eigendur fyrirtækjanna missa þau í hendur ríkisins í gegnum ríkisbankana. Hér er því um grundvallarstefnu að ræða og fráhvarf frá þeim markaðsbúskap sem efnahagslífið byggir á og almennt er talið að sé skilvirkasta leiðin til þess að fá sem mest verðmæti út úr atvinnustarfseminni," segir í pistlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×