Innlent

Indriði H. Þorláksson: Niðurstaða fengin í flestum atriðum Icesave

Guðný Helga Herbertsdóttir. skrifar
Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.

Niðurstaða er fengin í flestum atriðum í Icesave samningnum á milli íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda, segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Hann segir þó að enn eigi eftir að ganga frá lausum endum sem séu aðallega tæknileg atriði varðandi samninginn.

Í Morgunblaðinu í dag er fullyrt að fyrirvörum þeim sem Alþingi samþykkti í sumar verði breytt og að Íslendingar taki á sig auknar byrðar frá því sem þá var gert ráð fyrir.

Stjórnvöld hafi þannig fallist á að ekki verði hætt að greiða af Icesave-skuldabréfunum árið 2024 heldur verði upphæðin greidd að fullu. Þá munu Bretar og Hollendingar hafa fallist á að hægt verði að fara með málið fyrir dóm til að láta reyna á greiðsluskyldu Íslands en á hinn bóginn hefði niðurstaða dómsins, þótt hann yrði Íslendingum í hag, ekki sjálfkrafa þau áhrif að greiðslur falli niður.

Aðeins yrði sest aftur að samningaborði.

Indriði segir niðurstöðuna ekki fela í sér auknar byrðar fyrir Íslendinga. Það hafi alltaf legið fyrir að ekki yrði hætt að borga árið 2024 og að teknar yrðu upp viðræður að nýju ef dómsniðurstaða yrði Íslendingum í hag.

Hann vildi þó litlu svara um það hvort að ákvæðið sem kennt er við Ragnar Hall og kveður á um forgangsröð krafna sé áfram inni líkt og fyrirvararnir gerðu ráð fyrir. Í Morgunblaðinu segir að komist ESA, eftirlitsstofnun EFTA að þeirri niðurstöðu að það stangist á við evrópskan rétt falli þetta ákvæði úr gildi og breytir þá engu þótt niðurstaða Hæstaréttar Íslands yrði á þá leið að ákvæðið héldi.

Boðað hefur verið til ríkisstjórnarfundar í hádeginu og þá mun fjárlaganefnd einnig koma saman í dag. Þá verður einnig boðað til blaðamannafundar síðar í dag til að kynna niðurstöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×