Telur hægt að ná hagstæðum lánasamningum við Norðurlönd 22. maí 2009 19:15
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, er vongóður um að Íslendingar nái hagstæðum samningi við Norðurlönd vegna lánveitingar þeirra til Íslands. Lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kostar Íslendinga rúma 3 milljarða króna á ári. Norðurlöndin hafa skuldbundið sig til að lána Íslendingum 2,5 milljarða dollara eða rúmlega 300 milljarða króna í tengslum við lánveitingar AGS. Lánin renna beint inn í gjaldeyrivaraforða Seðlabankans en ekki stendur til að nota þau nema að litlu leyti. Á meðan eiga peningarnir að liggja inni á reikningi og safna vöxtum. Vextir af lánunum eru hins vegar mun hærri en þeir innlánsvextir sem eru í boði. Íslendingar greiða þannig 8,5 milljónir króna á dag fyrir lán AGS vegna vaxtamunar. Í því tilfelli eru innlánsvextir 1 prósent en lánsvextir 4 prósent. Ríkissjóður greiðir því rúma 3 milljarða króna á þessu ári í vaxtamun. Ríkisstjórnin hefur ekki útilokað að reynt verði að semja um vaxtakjör á láninu upp á nýtt. Fjármálaráðherra fundaði með sænskum stjórnvöldum í vikunni vegna lánveitingar Svía til Íslands. Hann er vongóður um að hægt verði að ná hagstæðum samningi. „Það er alveg ljóst að lánaskilmálar og lánskjör skipta okkur miklu máli í þessum efnum. Sem betur fer hafa vextir og vaxtaálag farið lækkandi alls staðar og það leggst með okkur núna. Ég er þokkalega bjartsýnn á það að lánskjör í þessum efnum verði okkur hagstæð miðað við það sem í boði gæti verið," sagði Steingrímur.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Sjá meira