Innlent

Óttast að forsendur fjárlaga séu brostnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Birkir segir að ríkið verði af tekjum vegna minni bílasölu. Mynd/ Pjetur.
Birkir segir að ríkið verði af tekjum vegna minni bílasölu. Mynd/ Pjetur.
Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, óttast að forsendur fjárlaga fyrir árið 2009 séu brostnar. Fjárlögin voru samþykkt skömmu áður en hlé var gert á störfum þingsins fyrir síðustu jól. Þá, líkt og nú, ríkti gríðarleg óvissa um þróun efnahagsmála.

Birkir bendir sem dæmi á að innflutningur á bílum sé umtalsvert minni en gert hafi verið ráð fyrir við gerð fjárlaganna. Þetta þýði að ríkissjóður verði af tekjum vegna minni bílainnflutnings.

Birkir spurði fjármálaráðherra í gær hversu margir hafi nýtt sér útgreiðslu á séreignarlífeyrissparnaði sínum samkvæmt sérstakri heimild frá því fyrr á árinu og hvað áætla megi að tekjur ríkissjóðs aukist með hliðsjón af því. Birkir segist í samtali við fréttastofu vilja gera sér grein fyrir því hvort forsendur stæðust þarna enda hefði verið gert ráð fyrir því að þær tekjur sem ríkið fengi með útgreiðslu þessara bóta myndu renna í greiðslu vaxtabóta. Þá séu fyrirspurnir af þessu tagi mikilvægt tæki til þess að veita stjórnarmeirihlutanum aðhald.

Birkir segir að nýleg þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins verði rædd á fundi efnahags- og skattanefndar á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×