Anna Mjöll með skilnaðarblús 5. nóvember 2009 06:00 Takið vasaklútana MEð! Anna Mjöll Ólafsdóttir treður upp á Bökuðu kartöflunni í kvöld.
Anna Mjöll Ólafsdóttir býr og starfar í Los Angeles. Hún heldur fyrstu stóru sólótónleikana sína í borginni í kvöld, á hinni gagnmerku djassbúllu The Baked Potato. „Eigandinn er búinn að biðja mig lengi um að koma einhverju saman og troða upp hjá sér og það passar vel að gera það núna þegar nýja sólóplatan mín er að koma út," segir Anna Mjöll. Sólóplatan heitir Shadow of Your Smile og kemur út í lok nóvember. „Ég syng djassstandarda í nútímalegum útgáfum, enda er ég með svo hipp gaura með mér. Það er búið að auglýsa þessa tónleika mikið og Íslendingafélagið ætlar að minnsta kosti að fjölmenna. Það situr á fremsta bekk og heldur í höndina á mér." Anna blæs á það að vera orðin amerísk þrátt fyrir amerískan hreim. „Við vorum einmitt að tala um þetta í Íslendingafélaginu. Þótt maður hafi búið úti í 100 ár talar maður alltaf um að „fara heim" þegar maður fer til Íslands. Þetta er rannsóknarefni. Ég kem oft heim til að hlaða batteríin. Ég kem um jólin og syng þá örugglega eitthvað." Anna Mjöll skildi við eiginmann sinn fyrir tveimur mánuðum. „Það er bara ein regla: Að fólk mæti með tissjú-box! Og ég ætla að nota þau öll sjálf," segir söngkonan, meira í gríni en alvöru. Og þó. „Það passar náttúrlega mjög vel að syngja þessa músík núna. Ég ætla að taka skilnaðarblúsinn út á áhorfendum." Anna einbeitir sér nú að sólóferlinum, en að auki fær hún verkefni. Hún samdi þrjú lög fyrir grínmyndina For Your Consideration - „Það er þó ekkert merkilegt. Merkilegast finnst mér að fá að syngja djass. Það er það sem stendur hjarta mínu næst."- drg
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið Fleiri fréttir Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Sjá meira