Innlent

Kalla saman almannavarnarnefnd vegna skjálftanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæjarstjóri segir að bæjarbúar séu rólegir þrátt fyrir skjálftana.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæjarstjóri segir að bæjarbúar séu rólegir þrátt fyrir skjálftana.
„Fólk heldur rónni," segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík. Jarðskjálfti upp á 4,5 á Richter með uppök undir Fagradalsfjalli varð um klukkan hálftvö í dag.

Jóna segist ekki hafa verið sjálf stödd í Grindavík þegar skjálftinn varð en hún hafi heyrt í fólki þar og skjálftinn hafi fundist greinilega. Jóna og Ásmundur Jónsson slökkviliðsstjóri í Grindavík hafa ákveðið að kalla saman almannavarnarnefnd um fimmleytið í dag, en í henni eiga sæti meðal annars slökkviliðsstjóri, bæjarstjóri, fulltrúi frá lögreglu, fulltrúi frá björgunarsveit og fulltrúi frá Rauða krossi.

Á fundinum verður farið yfir stöðu mála og horfur framundan. Hvorki Jóna né Ásmundur kannast við að skemmdir hafi orðið vegna skjálftans í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×