Telur verðfall á fiskmörkuðum kalla á rannsókn 2. nóvember 2009 04:00 Fiskverð Meðalverð á fyrsta þriðjungi ársins 2008 jafngilti 2,37 evrum en fyrsta þriðjung þessa árs var meðalverðið aðeins 1,25 evrur. Verðlækkanir erlendis skýra þetta ekki, segir framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna verð á fiskmörkuðum hér á landi og útflutningsverð þróaðist ekki í takt við gengisfall krónunnar framan af ári. „Það hefur eitthvað gerst á mörkuðunum,“ segir Örn. „Ég velti því fyrir mér hvaða hlekkur hafi brostið, þar sem framboð var svipað milli ára. Verðfallið er með þvílíkum ólíkindum að það kallar á opinbera rannsókn.“ Meðalverð á þorski á fiskmörkuðum hér á landi lækkaði um 21 prósent í krónum fyrsta þriðjung ársins. Á sama tíma jókst útflutningsverðmæti ferskra þorskflaka um 10 prósent í krónum talið en gengi krónunnar féll um 47 prósent gagnvart evru og 38 prósent gagnvart sterlingspundi. Örn gerði þessi mál að umtalsefni í ræðu á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda um miðjan október. Þar staðhæfði hann að þótt það væri viðtekin skoðun í þjóðfélaginu að fall krónunnar hefði komið útflutningsgreinunum til góða hefði smábátaútgerðin staðið styrkari fótum með sterka krónu en veika. „Það er til dæmis sárgrætilegt að bera saman verð á óslægðum þorski á fyrsta þriðjungi yfirstandandi árs og í fyrra. Þrátt fyrir tuga prósenta veikingu krónunnar gagnvart evrum og pundum svo dæmi sé tekið, dugar það ekki til. Allir mánuðirnir skiluðu lægra verði í krónum talið fyrir þorsk en 2008,“ segir Örn. „Upphæðir sem hér um ræðir eru gríðarlegar, í stað tugaprósenta hækkunar var niðurstaðan 17 prósenta lægra verð en í fyrra.“ Á fiskmörkuðum var meðalverðið á óslægðum þorski 213 krónur fyrsta þriðjung ársins en 258 krónur í fyrra. „Það vantaði 21 prósent til að ná sama verði, þrátt fyrir 47 prósenta hrun krónunnar gagnvart evru og 38 prósenta gagnvart pundi,“ segir Örn. Hann segir að verðlækkanir á erlendum mörkuðum nægi engan veginn til að skýra málið. Svo virðist sem breyting hafi orðið á þessari þróun frá því í sumar. Verð á innlendum fiskmörkuðum hefur farið hækkandi. Meðalverðið hefur verið á bilinu 300-400 krónur fyrir óslægðan þorsk frá því í sumar og hefur ekki verið hærra en nú undanfarin ár. Um fjórðungur þorskaflans hefur verið seldur á fiskmarkaði í ár. Upplýsingar um þróun útflutningsverðs liggja hins vegar ekki fyrir. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Sjá meira