Innlent

Arnarhreiður í beinni útsendingu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Örninn í hreiðri sínu.
Örninn í hreiðri sínu.

Reykhólasveit býður almenningi að horfa á arnarpar ala upp ungviði sitt á afskekktum stað í sveitinni fyrir tilstuðlan vefmyndavélar. Haft er eftir Bergsveini Reynissyni á Gróustöðum í Reykhólahreppi á vef Reykhólasveitar að aðsóknin að vefmyndavélinni við arnarhreiðrið frá því að útsendingin hófst á föstudag að aðsóknin verið langtum meiri en búist var við. Þannig hafi yfir fjögur hundruð gestir horft samtímis síðdegis í gær.

Smelltu á linkinn hér að neðan til að sjá Össuna í hreiðri sínu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×