Bíómyndin staðfest 8. október 2009 00:30 Á hvíta tjaldið Fjölskyldan í Arrested Development mun rata á hvíta tjaldið því allir leikararnir hafa samþykkt að vera með. Jason Bateman verður því á sínum stað.
Sá orðrómur hefur lengi verið á kreiki að til stæði að gera bíómynd eftir sjónvarpsþáttunum Arrested Development. Kvikmyndavefsíða Empire greinir frá því í gær að nú sé þetta endanlega komið á hreint; kvikmyndin verði að veruleika. Handritshöfundurinn og leikstjórinn Mitch Hurwitz er sestur niður og byrjaður að skrifa handritið en hann er hugmyndasmiðurinn á bak við þessa þætti sem hafa notið mikilla vinsælda um heim allan, þar á meðal á Íslandi. Samkvæmt vefsíðu Empire hafði Hurwitz lýst því yfir að kvikmyndin kæmi ekki til greina nema allur leikhópurinn samþykkti að taka þátt. Hann samanstendur af Jason Bateman, Will Arnett, Portiu De Rossi, Michael Cera, Jessicu Walter, Jeffrey Tambor, Tony Hale, Aliu Shawkat og David Cross. Upphaflega var talið, þótt það hefði ekki fengist staðfest, að fyrirætlanirnar myndu stranda á Michael Cera enda hefur hann náð töluverðum árangri á hvíta tjaldinu eftir að þættirnir voru sýndir. Hann virðist þó hafa tíma til að leika í myndinni og aðdáendur þáttanna geta því varpað öndinni léttar. Þótt Arrested Development hafi náð töluverðri hylli meðal gagnrýnenda var ákveðið að slá þáttaröðina af eftir aðeins þrjár seríur þrátt fyrir að hún væri margverðlaunuð. Áhorfið reyndist ekki vera sem skyldi. Blaðamaður Empire skrifar að vonandi muni framleiðslufyrirtækið Fox Searchlight koma betur fram við þessa skrítnu fjölskyldu en sjónvarpsfyrirtækið. Talið er að Ron Howard muni tala inn á myndina sem þulur.
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Sjá meira