Innlent

Komin úr öndunarvél

Konan sem varð fyrir alvarlegri árás í Hörðalandi í Fossvogi gærmorgun er á batavegi. Að sögn vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er konan komin úr öndunarvél.

Fyrrum eiginmaður konunnar veitti henni þung höfuðhögg og skurð á höfði en hún fór í kjölfarið í aðgerð. Maðurinn lét lögreglu vita af árásinni og er í kjölfarið talinn hafa drukkið stíflueyði, eða annan álíka ætandi lög, eftir að hafa veitt konunnin áverkana. Hann lést á landstpítalanum nokkrum klukkustundum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×