Nóg að gera hjá Mark Wahlberg 8. október 2009 00:30 Miklar annir Hún er þéttskipuð dagskráin hjá Mark Wahlberg en hann leikur meðal annars eitt aðalhlutverkanna í The Lovely Bones eftir Peter Jackson.
Eins og kom fram í fjölmiðlum er gert ráð fyrir að Mark Wahlberg leiki aðalhlutverkið í endurgerðri og staðfærðri útgáfu af Reykjavík-Rotterdam. Baltasar Kormákur mun leikstýra en Working Title framleiðir myndina. Áður en að því kemur hefur Wahlberg í nógu að snúast en ferill þessa geðþekka leikara hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Mark Wahlberg er fæddur í Dorchester í Massachusetts á því herrans ári 1971. Hann komst snemma í kast við lögin og hlaut nokkra dóma fyrir smávægileg afbrot. Hann reyndi fyrst fyrir sér sem tónlistarmaður undir nafninu Marky Mark enda var eldri bróðir hans, Donny Wahlberg, í hinni ofurvinsælu drengjasveit New Kids on the Block. Mark reyndist vera ágætis leikari og lét fyrst að sér kveða í Di Caprio-myndinni Basketball Diaries. Í kjölfarið komu kvikmyndir á borð við Boogie Nights, The Big Hit og Three Kings. Ferill Wahlbergs hefur verið skrykkjóttur; sumar bíómyndir hans hafa verið hálfgert drasl en hann náði ákveðnu hámarki með frammistöðunni í The Departed eftir Martin Scorsese. Wahlberg hefur þó yfirleitt haft í nógu að snúast, hann er einn framleiðenda hinnar vinsælu sjónvarpsþáttaraðar Entourage og leikur eitt aðalhlutverkanna í næstu kvikmynd Peters Jackson, The Lovely Bones. Þá er í bígerð framhald af The Italian Job sem nefnist The Brazilian Job og svo leikur hann á móti Christian Bale í kvikmyndinni The Fighter. - fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Sjá meira