Örlygur Smári gerist plötusnúður 8. október 2009 06:00 DJ Smári? Örlygur Smári stígur á svið sem plötusnúður á föstudaginn. fréttablaðið/Ste´fan „
Mig hefur langað til að gera þetta í langan tíma og fæ kjörið tækifæri til að kýla á þetta,", segir upptökustjórinn og lagahöfundurinn Örlygur Smári. Örlygur lætur gamlan draum rætast annað kvöld þegar hann verður plötusnúður á 90's-kvöldi á skemmtistaðnum Spot. Hann hefur hingað til verið þekktari fyrir gæfuríkt samstarf þeirra poppkóngsins Páls Óskars ásamt því að hafa tvisvar samið framlag Íslands í Eurovision. „Ég hef aldrei unnið sem plötusnúður, en ég var í þessum bransa," segir Örlygur, spurður hvort hann ætli að rifja upp gamla takta. „Ég var í hljómsveit í gamla daga og spilaði á böllum. Þá sá ég um tónlistina í pásunni. Þannig að maður ætti að vita hvað fólkið vill heyra." Plötusnúðsferillinn náði aldrei svo langt að Örlygur fengi DJ-nafn. Undirritaður stingur upp á DJ Smári, en hann býst ekki við að nota það. „Nei, ætli það?" segir hann og hlær. Spurður um framhaldið segir Örlygur að það sé aldrei að vita hvort plötusnúðsferillinn verði farsæll. „Ég ætla að sjá hvernig þetta gengur og þróast," segir hann. „Ég er mikið að vinna dansmúsik. Það er gaman að sitja ekki bara heima í stúdíóinu og búa þetta til heldur spila þetta líka." Haffi Haff og Anna Hlín koma einnig fram á 90s-kvöldinu sem dúettinn A.K.A og þá mun Valli Sport einnig þeyta skífum. - afb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Sjá meira