Enski boltinn

Robson ráðinn sem landsliðþjálfari Tælands

Ómar Þorgeirsson skrifar
Bryan Robson.
Bryan Robson. Nordic photos/AFP

Knattspyrnusamband Tælands hefur staðfest að Bryan Robson hafi samþykkt að gerast landsliðsþjálfari Tælands en hann tekur við starfi Peter Reid sem hætti á dögunum til þess að gerast aðstoðarþjálfari Stoke. Robson skrifar undir fjögurra ára samning við tælenska knattspyrnusambandið.

„Hann er mjög ánægður með að það sem við buðum honum og planið er að hann stýri landsliðinu í Asíubikarnum, Ólympíuleikunum og vonandi á HM 2014," segir í fréttatilkynningu frá knattspyrnusambandi Tælands.

Robson var síðast knattspyrnustjóri Sheffield United en hætti sem slíkur í febrúar á síðasta ári en áður var hann stjóri WBA, Bradford og Middlesbrough.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×