Innlent

Rannsaka fjölmörg mál tengd kannabisræktun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Karl Steinar Valsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mynd/ Vilhelm .
Karl Steinar Valsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mynd/ Vilhelm .
Von er á að ákvarðanir verði teknar um ákærur í kannabisræktunarmálum á næstunni, að sögn Karls Steinars Valssonar, hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Fjölmargar fíkniefnaverksmiðjur hafa verið upprættar í vetur. Síðastliðinn þriðjudag var til dæmis hald lagt á 400 kannabisplöntur á tveimur stöðum í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Karl Steinar segir að farið sé að nálgast síðari rannsóknarstig í fjölmörgum málum en lengri tíma taki að rannsaka stærri málin.

„Í sumum tilfellum var ansi mikið umfang og þá þarf að huga að mörgum þáttum í rannsókninni. Málin eru mismunandi flókin," segir Karl Steinar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×