Sjóðsstjóri og miðlari fyrir rétt á morgun 28. október 2009 10:07 Daníel Þórðarson, fyrrverandi sjóðsstjóri peningamarkaðssjóðs Kaupþings. Hann ásamt Stefni Inga Agnarsyni mæta fyrir dómara á morgun.
Aðalmeðferð fer fram í sakamáli gegn fyrrverandi sjóðsstjóra peningamarkaðssjóðs Kaupþings og skuldabréfamiðlara sama banka á morgun. Sjóðsstjórinn, Daníel Þórðarson og skuldabréfamiðlarinn Stefnir Ingi Agnarsson, hafa verið ákærðir af ríkislögreglustjóra fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á skuldabréfum í Exista í janúar og febrúar á síðasta ári. Exista var þá aðaleigandi Kaupþings. Mönnunum tveimur er gefið sök að hafa sett inn kauptilboð í skuldabréfaflokk Exista alls sex sinnum frá janúar til febrúar á síðasta ári. Um var að ræða fimm milljón króna kauptilboð í hvert skipti sem voru lögð fram í Kauphöll Íslands á mánaðartímabili. Tilboðið hafði áhrif á dagslokaverðið og þar með bjuggu þeir til falska eftirspurn auk þess sem verð bréfanna var misvísandi, eins og það er orðað í ákæruskjali. Málið var þingfest í mars síðastliðnum. Það hefur því tekið málið um sjö mánuði að fara í aðalmeðferð. Málið er eitt fyrsta sakamálið vegna brota í aðdraganda bankahrunsins sem hefur ratað fyrir héraðsdóm. Töluverð umræða hefur verið um að í undanfara bankahrunsins, hafi verðbréfamiðlarar reynt að halda gengi bréfa í stóru bönkunum þremur og öðrum félögum uppi, með svipuðum aðferðum og hér um ræðir. Verði Daníel og Stefnir sakfelldir þá geta þeir búist við fangelsi, allt að sex árum samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. Aðalmeðferð fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Sjá meira