Innlent

Breytt viðhorf til flugvallarins líkleg

aðflug í reykjavík Borgaryfirvöld segjast ekki hafa breytt um stefnu í málefnum Reykjavíkurborgar þótt þeim lítist vel á nýja flugstöð á gamla staðnum í stað stórrar samgöngumiðstöðvar.Fréttablaðið/pjetur
aðflug í reykjavík Borgaryfirvöld segjast ekki hafa breytt um stefnu í málefnum Reykjavíkurborgar þótt þeim lítist vel á nýja flugstöð á gamla staðnum í stað stórrar samgöngumiðstöðvar.Fréttablaðið/pjetur

Ekki er ólíklegt að menn breyti hugsun sinni um framtíð Reykjavíkurflugvallar í ljósi breyttra efnahagsaðstæðna, að mati formanns skipulagsráðs, Júlíusar Vífils Ingvarssonar.

Hann var spurður hvernig ný flugstöðvarbygging, sem greint var frá í blaðinu í gær, færi saman við aðalskipulag borgarinnar, sem gerir ráð fyrir að stór flugbraut á vellinum hverfi árið 2016 og afgangurinn 2024. Um leið var hann spurður hvort nú væri rætt um að flugvöllurinn yrði lengur í Vatnsmýrinni en áður var áætlað:

„Nú er í vinnslu nýtt aðalskipulag til 2030. Sveitar­félög þurfa að gera nýtt skipulag reglulega samkvæmt lögum, og þá er flugvöllurinn auðvitað undir líka. Ég get ekki sagt fyrir um tímasetningar í þessu samhengi. Önnur stóra flugbrautin á að hverfa 2016, en ég held að það sé ekki ólíklegt að menn fari að horfa til breyttra aðstæðna í efnahagslífinu þegar þeir skoða framtíð flugvallarins hér í Vatnsmýrinni á næstu árum og tímasetningar,“ segir Júlíus.

Í apríl þessa árs kom tilkynning frá Reykjavíkurborg og samgönguráðuneytinu um samgöngumiðstöðina. Þar sagði að hlutverk hennar væri mikilvægt, hvort sem flugvöllurinn yrði á sínum stað eða ekki, „enda er samgöngumiðstöð ætlað að hýsa alla samgöngustarfsemi í Vatnsmýrinni til framtíðar“.

Nýjustu hugmyndir um miðstöð á svæðinu fjalla um að byggt verði aðallega utan um flugsamgöngur, en Umferðarmiðstöðin standi einnig áfram. Í gær sagði Júlíus Vífill að hann myndi fara vel yfir erindi frá samgönguyfirvöldum um nýbyggingu flugstöðvar, enda væri núverandi aðstaða flugsins óviðunandi.

Þrátt fyrir að ný flugstöð virðist því byggja á öðrum forsendum en samgöngumiðstöðin átti að gera segir Júlíus Vífill að engin stefnubreyting hafi orðið af hálfu borgar­innar, heldur samgöngu­ráðuneytisins.

Spurður hvort rökin fyrir uppbyggingu á vellinum snúist þá um innanlandsflugið eða um allsherjar samgöngustarfsemi borgarinnar, segir Júlíus: „Þetta er góð spurning, en ég get ekki séð annað en að þarna sé um samgöngumiðstöð að ræða, þótt hún sé með öðru sniði en rætt hefur verið um til þessa.“ Ekki náðist í Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur borgarstjóra í gær. klemens@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×