Breytt viðhorf til flugvallarins líkleg 24. nóvember 2009 04:00 aðflug í reykjavík Borgaryfirvöld segjast ekki hafa breytt um stefnu í málefnum Reykjavíkurborgar þótt þeim lítist vel á nýja flugstöð á gamla staðnum í stað stórrar samgöngumiðstöðvar.Fréttablaðið/pjetur
Ekki er ólíklegt að menn breyti hugsun sinni um framtíð Reykjavíkurflugvallar í ljósi breyttra efnahagsaðstæðna, að mati formanns skipulagsráðs, Júlíusar Vífils Ingvarssonar. Hann var spurður hvernig ný flugstöðvarbygging, sem greint var frá í blaðinu í gær, færi saman við aðalskipulag borgarinnar, sem gerir ráð fyrir að stór flugbraut á vellinum hverfi árið 2016 og afgangurinn 2024. Um leið var hann spurður hvort nú væri rætt um að flugvöllurinn yrði lengur í Vatnsmýrinni en áður var áætlað: „Nú er í vinnslu nýtt aðalskipulag til 2030. Sveitarfélög þurfa að gera nýtt skipulag reglulega samkvæmt lögum, og þá er flugvöllurinn auðvitað undir líka. Ég get ekki sagt fyrir um tímasetningar í þessu samhengi. Önnur stóra flugbrautin á að hverfa 2016, en ég held að það sé ekki ólíklegt að menn fari að horfa til breyttra aðstæðna í efnahagslífinu þegar þeir skoða framtíð flugvallarins hér í Vatnsmýrinni á næstu árum og tímasetningar,“ segir Júlíus. Í apríl þessa árs kom tilkynning frá Reykjavíkurborg og samgönguráðuneytinu um samgöngumiðstöðina. Þar sagði að hlutverk hennar væri mikilvægt, hvort sem flugvöllurinn yrði á sínum stað eða ekki, „enda er samgöngumiðstöð ætlað að hýsa alla samgöngustarfsemi í Vatnsmýrinni til framtíðar“. Nýjustu hugmyndir um miðstöð á svæðinu fjalla um að byggt verði aðallega utan um flugsamgöngur, en Umferðarmiðstöðin standi einnig áfram. Í gær sagði Júlíus Vífill að hann myndi fara vel yfir erindi frá samgönguyfirvöldum um nýbyggingu flugstöðvar, enda væri núverandi aðstaða flugsins óviðunandi. Þrátt fyrir að ný flugstöð virðist því byggja á öðrum forsendum en samgöngumiðstöðin átti að gera segir Júlíus Vífill að engin stefnubreyting hafi orðið af hálfu borgarinnar, heldur samgönguráðuneytisins. Spurður hvort rökin fyrir uppbyggingu á vellinum snúist þá um innanlandsflugið eða um allsherjar samgöngustarfsemi borgarinnar, segir Júlíus: „Þetta er góð spurning, en ég get ekki séð annað en að þarna sé um samgöngumiðstöð að ræða, þótt hún sé með öðru sniði en rætt hefur verið um til þessa.“ Ekki náðist í Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra í gær. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira