Innlent

Hálkublettir á Reykjanesbraut

Reykjanesbraut.
Reykjanesbraut.
Á Reykjanesbraut og víða á höfuðborgarsvæðinu eru hálkublettir. Einnig eru hálkublettir á Bröttubrekku og á Holtavörðuheiði. Hálka er á Sandskeiði og á Hellisheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Á Vestfjörðum er hálka á Steingrímsfjarðarheiði og á Gemlufallsheiði þar sem einnig er skafrenningur. Snjóþekja er í Ísafjarðardjúpi en unnið er að hreinsun. Þungfært er á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði. Snjóþekja er einnig á Ströndum.

Norðanlands er hálka á Öxnadalsheiði. Hálkublettir eru á Þverárfjalli og á Vatnsskarði.

Vegna aurbleytu og hættu á skemmdum hefur allur akstur nú verið bannaður á nokkrum hálendisleiðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×