Gylfi: Þjóðarbúið rambar ekki á barmi gjaldþrots 23. apríl 2009 12:02 Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
Það er fullkominn misskilningur að þjóðarbúið hér rambi á barmi gjaldþrots, þvert á móti er útlit fyrir að hreinar skuldir íslenska ríkisins verði jafnvel minni en margra nágrannaríkja þegar um hægist, þetta segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, í grein í miðopnu Morgunblaðsins þar sem hann reynir að stappa stálinu í þjóðina. Hann segir jafnframt að fyrir hrun hafi erlendar skuldir þjóðarbúsins verið óviðráðanlegar. Meirihluti þessara skulda séu nú kröfur á þrotabú bankanna og hverfi eftir uppgjör þeirra. Eftir standi þá aðeins skuldir annarra fyrirtækja, heimila og hins opinbera. Tjónið við hrunið sé fyrst og fremst peningalegar eignir, það er að segja markaðsvirði hlutabréfa og eigið fé fyrirtækja. Mest sé þó tjónið hjá þeim sem áttu kröfur á íslenska banka. Það séu því einkum evrópskir bankar og íslenskir lífeyrissjóðir og fleiri sem hafi tapað þúsundum milljarða á hruninu. Raunverulegar eignir séu hins vegar óskemmdar, mannauðurinn, mannvirkin og náttúruauðlindirnar. Leikur einn sé að koma á fót nýju fjármálakerfi við slíkar aðstæður miðað við það til dæmis að reisa aftur hagkerfi þar sem raunverulegar eignir hafa skemmst, vegna stríðs eða hamfara. Endurreisn fjármálakerfisins lýkur á næstu vikum, segir Gylfi. Þá verði Ísland í þeirri öfundsverðu stöðu, að sitja ekki uppi með fársjúkt fjármálakerfi sem dæla þarf skattpeningum inn í. Vandamálin hafi að miklu leyti verið skilin eftir í þrotabúum bankanna. Árið 2009 verður erfitt, segir Gylfi, þá verður samdrátturinn og atvinnuleysið mest og varla fari hér að hjarna við heldur á næsta ári. Ríkið þurfi að skera niður, það megi hins vegar vel leysa með skynsamlegum hætti og bendir hann á að samneyslan hafi vaxið um 40% frá 1998 til 2007 - þótt landsmönnum hafi aðeins fjölgað um 13%. Því sé engin ástæða til svartsýni fyrir íslenska þjóð.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Fleiri fréttir Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi Sjá meira